Ríkey msingur
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
12.06.2007 19:57:17 / mercury

hummmm

Nei eruði að sjá þetta, ég er actually að blogga og það eru bara liðnir 5 dagar síðan ég bloggaði síðast!!! Ég hlýt að vera bilast or some, geri þetta nú bara aldrei. En já  ég fékk bara allt í einu þessa geðveiku þörf fyrir að skrifa ekkað á meðan ég ligg hénna upp í rúmi og hef það nice. Þarf reyndar að fara elda eftir smá, hakk og spagettí í annað sinn í dag, fékk líka solleis í hádeginu en who cares, ég borða þá bara minna no problem:P

En já ég skellti mér á ball um helgina, æltaði sko ekkert að drekka en að fór náttla eins og það fór og ég drakk slattta, varð frekar drukkin og datt á endanum niður hólinn hjá Stekkhól ( félagsheimili hestamanna) ballið var semsagt þar, það var reyndar mjög stutt bara til 2 öm, mig langaði að hafa það lengra, en ég fékk náttla engu um það ráðið frekar en vanalega piff:P en já ég var semsagt að hlaupa niður hólinn sem er ekkert lítið brattur, Guðný fór á undan mér niður og Védís á eftir mér og þær komu báðar niður á fótunum annað en ég, ég datt í miðri brekkunni og rúllaði rest og endaði á möl, þannig að ég er öll marin og blá á hægri hliðinni og með fallega kúlu á hausnum mér til lítillar ánægju.

Svo var aðeins farið heim til Fúsa eftir þetta en ég skellti mér heim um 4 átti að mæta í vinnu kl 9. þannig að ég varð að fá einhvern svefn. Ég mætti síðan í vinnuna um morguninn ekkert gífurlega hress, en þetta slapp allt saman, held einhvern veginn að það hafi ekki verið alveg runnið af mér en er samt ekki alveg viss;)

Svo vorum ég, Guðný og Andres geggt dulleg í gær og hlupum og löbbuðum upp skarðið, það var sko fokking KALT, ég hélt að hausinn myndi detta af mér sökum kulda á leiðinni upp því það var svo mikið rok og mikil rigning með rokinu. Við fórum samt bara öðrum megin, förum vanalega bæði upp og niður báðu megin allvega ég og Guðný. Andres hefur nebbla aldrei farið með okkur áður í þetta.

Svo er ég orðin ógó brún, eða allavega miðað við það sem ég var. Ég á samt eftir 6 tíma sem er bara hið besta mál, verð orðin kolsvört fyrir humarhátíð:P

Ég hlakka nú ekkert lítið til helgarinnar, er í fríi föst, lau og sun sem er náttla bara oooof nice. Þórhildur vinkona mín ætlar að kíkja í sveitina til mín. Hún er búsett í borginni nebbla, eins og flestir mínir vinir reyndar. En hvað um það þá ætlar hún að vera frá föstudegi til sunnudags. Hlakka til að sjá hana við gerum ekkað klikkað saman. En ég er reyndar að passa gríslingana núna og alveg fram í næstu viku en það er bara stuð, þarf eimmitt að fara að huga að matnum núna þannig ég held að  þetta sé bara orðið gott í bili.

 

En eitt p.s. ég er komin með nýja klippingu er orðin ljóshærð:D ógó töff:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 20:44:35 / mercury

Stuð, stuð, stuð, stuð íslenskstuð:D

Hellú hellú

Já ég veit að ég er latari en allt að blogga, hef bara verið í engu stuði til þess upp á síðkastið. En ég ætla að reyna að bæta úr því núna, enda veitir ekki af. Búin að gera asskoti margt síðan síðast.

Byrjum bara á hvítasunnuhelginni, þá skellti ég mér á Klaustur. Ég fór ein frá Höfn en Guðný, Andrés og Arnar komu úr Reykjavík, allavega á föstudeginum svo bættist Binni við í hópinn snemma á laugardagsmorguninn. En allavega þá var ég komin þangað um 23:00 á föstudagskvöldið og þá var bara drifið sig á tjaldssvæðið á Klaustri og tjaldinu skellt upp. Þegar það var búið fengum við okkur einn bjór, en það varð ekkert meira úr drykkjunni það kvöldið, þannig við skelltum okkur upp á Systrastapa, eða svona réttara sagt Arnar og Guðný fóru upp á systrastapa, ég gugnaði þegar ég var byrjuð að klifra upp, trylltist bara er ÓGEÐSLEGA LOFTHRÆDD:!::!::!::!: það er sko skuggalegt, svo vorum við ekkað bara að leika okkur að hlaupa aðeins á eftir rollunum sem voru þarna og svona. Þegar við komum aftur upp í tjald náðum við í bolta og röltum niður að skólanum, þar fórum ég, Andres og Guðný í körfubolta en Arnar nennti ekki eða var allavega mjög lítið með. Ég og Guðný vorum á móti Andresi og hefðum sko alveg unnið ef við hefðum verið jafn stórar og Andres. Það er svo varla hægt að kasta yfir hann sem er sko fokking öm. En við töpuðum ekki stórt, vorum sko massagóðar í þessu;) en já þegar “ heima” var komið fór Andres ekkað að snúa Guðnýju og Arnari í hringi rétt hjá tjaldinu okkar, og eru snjóbuxurnar mínar mjög grasgrænar og rifnar eftir það, sem er ekkert ofsalega sniðugt. En já svo fórum við bara að sofa.

Binni kom síðan e-ð tíman um hálf 7 um morgunin og þeir Andres fóru að klifra systrastapa og ekkað stuð hjá þeim, en við hin sváfum bara áfram eða svona til hálf 10 þá var drattast framúr og farið í sturtu, sem var ooof nice:D

Við ákváðum síðan að koma okkur á krossarasvæðið og horfa á mótorkrossið, fokking margir sem voru að keppa sko. En við fórum um 2 leitið því það var byrjað að rigna og við gleymdum náttla tjaldinu opnu og einni dýnu úti og svona þegar við fórum á svæðið, glæsilega gert hjá okkur. Svo vorum við alveg að drepast úr þreytu og ákváðum að fara að sofa. Eftir ágætis blund fórum við að gera ekkað man ekki hvað. En svo var farið að grilla um hálf 8, svínakjöt ,nammi namm:P

Já og svo var byrjað að drekka um 10 eða hálf 11. Við Guðný vorum bara með Vodka. Sem er bara besta mál. Guðný var ógó hörð og drakk hann dry, hehe glæsilegur svipur sem kom á hana:P

Ég var orðin vel hífuð um 12 leitið og þá skelltum við okkur upp í tjald og við Guðný fórum að gera okkur reddý. Svo var bara farið á ball, sem var helvíti skemmtilegt, hefði verið skemmtilegra ef Arnar hefði ekki verið edrú, greyið kann ekki að skemmta sér að sveitböllum edrú, það er algjör staðreynd:!::!:

En já á sunndeginum var svo drattast á fætur, um hálf 12. Farið í sturtu og þaðan síðan að fá sér að éta. Svo fékk ég að blása hjá löggunni um 1 leitið, og þá kom í ljós að ég var ekki í ökuhæfu ástandi, en það var orðið gott um klukkutíma seinna, þannig þá var farið heim og svona, eftir helvíti mergjaða helgi:D:D:D:D:D

 

Jæja það næsta sem ég ætla að segja frá er sjómannadagurinn, hann var sko helvíti mergjaður. Var vinna á laugardeginum en náði samt að sjá ekkað af keppnunum og svona. Svo skelltum Andres og Egill sér í fleka hlaup til þess að græða nokkra bjóra, fórum 2svar hvor, sem er bara nokkuð vel af sér vikið. Svo var náttla ball um kvöldið, við redduðum okkur í mjólkurbúðina og vorum bara nokkuð vel sett sko. Svo byrjuð við að drekka um svona hálf 11 heima hjá Guðnýju, þar að segja ég, Guðný, Andres, Egill og Helga. En Helga byrjaði reyndar doldið seinna að drekka en við ,en hún var sko helvít hress eins og við öll þegar við röltum á ballið um 1 leitið. Ballið var ágætt sko, hefði alveg mátt vera soldið lengur. En fólk var bara orðið alltof fullt og þvílík slagsmál og læti. Allt bara bandbrjálað. En við dröttuðumst heim um 4 leitið. Ég var síðan ræst um 12 og við Helga röltum til Guðnýjar að ná í bílinn minn uppúr 2 og svo fór ég á Hafnarbúðina og fékk mér Olsenloku og kristalplús, nammi namm. Svo fórum við Helga niðrá hóteltún og horfðum á Sjómannadagsskránna, svo nældi ég mér í nokkra karamellur þegar þeim var kastað og svona. Já svo höfðum við Helga bara ekkert að gera þannig við fórum og tókum spólu og þá var dagurinn eilla bara búinn.

Ég er síðan búin að vera vinna heavy mikið í þessari viku, og svo er ég líka búin að fara í ljós, ælta mér sko að verða fokking brún takk fyrir.

Já svo fórum við Guðný að labba skarðið á mánudaginn, vorum geggt duglegar og löbbuðum upp og niður báðu megin. Svo fóru strákarnir út á fjörur, semsagt Andres, Örn og Egill og þeim tókst náttla að festa sig þar, og Örn var svo pikkfastur að þeir þurftu að fara út á Höfn að ná í jeppa til að draga hann upp. Svo í gær fór ég að ná í Andres út á fjörur af því að hann hafði verið að leika sér þar með Agli og Erni en þá sprakk náttla og hann ekki með neitt varadekk, glæsilega gert hjá þeim.

En já ég nenni eilla ekki að hafa þetta mikið lengra enda er þetta fokking langt, ég ætla að skella inn myndum um leið og ákveðin manneskja er búin að kenna mér það “hóst” Guðný.

En allavega leiter peeps


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 17:47:19 / mercury

uuu já

Leti leti og enn meiri leti. Ég er svo innilega löt ekkað núna, nenni ekki að gera neitt. Þannig ég ákvað að blogga hehe...:D

Ég er búin að vera frekar slöpp núna síðustu viku, var með svo mikin hósta að ég var nánast að kafna á tímabili, sem er ekkert ofsalega töff.

Reyndi nú samt að skella mér á fótboltaæfingu á miðvikudaginn, en ég var REKIN úr liðinu fyrir að vilja ekki taka frí fyrir fótboltann í sumar. Chaki semsagt bara gaf mér úrslitakosti, annaðhvort að ég myndi vera með sem þýddi að ég þyrfti að fara í hvern einasta leik og að vinnufórnun væri mjög mikil, eða þá að ég yrði bara ekki með ef ég gæti ekki tekið frí í vinnunni, og þetta ekki með þýddi þá fyrir alla leikina, fæ ekki einu sinni að vera í heimaleikjum eða neitt, djöfull er þetta sko fokking ömurlegt, skítlegt er rétta orðið held ég. En semsagt það verður engin fótbolti hjá mér í sumar því ver og miður, verð bara að koma mér í form á einhvern annan hátt. En já Guðný og Andres komu austur á fimmtudagsnóttina kl hálf 5. Ég var náttla steinsofandi þá komst að því á föstudaginn að þau voru komin. Við skelltum okkur á rúntinn og Andres var stoppaður af löggunni fyrir of hraðan akstur og fékk sekt, vel gert það:P hehe

En já svo langaði mig geðveikt að fara á ball á laugardaginn, en það var uppselt or some á ballið, sem var btw á Egilsstöðum, ég ætlaði bara að keyra þangað og dansa af mér rassgatið.

En mér er byrjað að líða betur núna laus við hóstann, sem er mikill munur. Fór samt á trampólínið í gær og tókst að meiða mig á þumalputtanum, á hægri hendi sem er ekkert ofsalega töff þar sem ég nota þá hendi mest þegar ég er í vinnunni, en mér tekst víst að meiða mig á öllu:S

 
En já ég er hætt í bili,

 
Leiters


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 18:16:20 / mercury

veeeeik!!

Okey hér kemur oggu ponsu lítið blogg.

Ég er sko í engu stuði til þess að blogga, en þar sem þið voruð að suða þá skal ég blogga pínu.

Svo á líka hún Ingunn afmæli orðin 18 ára kellann hundgömul alvegJ hehe

Neinei kannski ekki alveg jafn gömul og ég orðin sjálfráða og svona, sem er bara besta mál.

En ég skellti mér í bæinn á fimmtudaginn þurfti að fara í jarðarför á föstudaginn. Gerði það og svona, svo fékk ég orlof á föst líka, mér til mjög mikillar gleði átti nú ekki beint mikinn pening. Við Guðný skelltum okkur í búðir og keyptum okkur föt og svona, svo var ákveðið að fara upp í Þjórsárdal, þar sem Andres á hjólhýsi, ég Guðný, Andres, Arnar og Binni fórum. Það var heavy stuð, varð soldið drukkin sem er bara gott mál, nema að ég fékk líka massíft kvef, sem var ekki alveg jafn töff. Meira svona fokking öm sko. Langar nú lítið að hafa þetta, hélt að ég myndi hósta úr mér lungunum í vinnunni í dag.

En já svo var náttla eurovision um helgina. Djöfull var ég fúl að við komumst ekki áfram. Mér finnst þetta ekkert gaman. Austurtjaldsþjóðirnar eru bara búnar að taka yfir keppnina þannig að við sem búin hénna megin í Evrópu komust ekkert að. Þetta er ÖMURLEGT:!::!::!::!:

En já ég nenni nú ekki að hafa þetta mikið lengur

Blogga e-ð tíman seinna

 

blizzz


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 20:40:55 / mercury

damdaradammm

Jæja ætli maður skelli ekki inn eins og einni færslu eða svo:P

Það hefur nú ýmislegt gerst síðan síðast og þar að meðal það að ég átti afmæli, fór í próf og fór til Hafnar. En á ammælisdaginn minn gerði ég nú ekkert gífurlega margt. Guðný, Andrés og Binni komu og náðu í mig um 10 leitið og við fórum að rúnta, fórum meðal annars til Grindavíkur, sem er náttla bara oooof dauður bær og ég sem hélt að Höfn væri dauð...hehe. En svo hringdi Arnar og við ákváðum að skella okkur bara í bæinn. Arnar var á bíl og við skemmtum okkur bara asskoti vel sko. Kom heim um 5 leitið og vaknaði kl 8 morgunin eftir og var náttla ekkert þreytt:O hehe... var sko svo algjörlega dauð. Fór  að læra með Þórhildi og Ernu eða meira svona “læra” held að það hafi verið meira talað og hlegið og svona.  Vorum ekkert alveg að nenna þessu sko enda er efnafræði ekki beint það skemmtilegasta í heimi. Á miðvikudeginum fór ég svo heim til Ernu út á Seltjarnarnes og ég, hún og Þórhildur reyndum að undirbúa okkur munnlegaprófið í dönsku, það tókst ágætlega miðað við það að ég fékk 9:P Já og svo lét ég smyrja bílinn minn... það kostaði sko fokking 11 þúsund.:!::!::!::!: sem er náttla ekkert mikið:O

En svo skellti ég mér í sund  um kvöldið með Guðnýju, Binna og Andrési.

Fimmtudagurinn var nú bara frekar leiðinlegur vorum heima hjá mér að reikna efnafræðipróf eins og mófós... svo fór ég í ökumat, fékk 3 mínusa, fyrir að keyra of hratt, bil á milli bíla og stýrisgrip. Mér finnst það bara nokkuð gott sko, þannig ég er ekkert ofboðslega slæmur bílstjóri. Fór síðan í sund um kvöldið með Arnari þar sem greyið hún Guðný þurfti að læra fyrir nátt 113 (jarðfræði). Svo á föstudaginn fór ég í efnafræðipróf.  Held að mér hafi bara gengið nokkuð vel:D sem er bara gott mál sko. Svo ætlaði ég að hafa smá ammælispartý um kvöldið, en það var bara beilað hægri vinstri og þetta varð frekar leiðinlegt. En ég skellti mér samt niðrí bæ með Guðnýju, Arnari og Sigrúnu vinkonu Arnars.

En svo fékk ég líka miður skemmtilegar fréttir á föstudaginn. Hún lang amma mín dó, enda orðin gömul og þreytt. Orðin 93 ára, sem er soldið hár aldur. Þannig nú þarf að fara í jarðaför í fyrsta skipti á ævinni. Í Stykkishólmi, og verð ég þar af leiðandi líklega í bænum þegar Eurovision verður:P á að gera ekkað??????

En allavega held að þetta sé komið gott í bili, nema ég skellti mér austur á laugardaginn, fór á fótboltaæfingu í gær og gat varla labbað sökum harðsperra, svo byrjaði ég líka að vinna í dag sem er bara gott mál því þá fæ ég monninga:D:D:D

 

En ég er hætt í bili

Leiters:D:P


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 16:42:08 / mercury

ENDURLÍFGUN:D:D:D:D

Jæja jæja, haldiði að ég hafi ekki bara ákveðið að lífka þessa síðu aðeins við þar sem hún hefur nú verið sú allra allra dauðasta síðan í september8|

 

Ég veit ekki afhverju ég tók þessa ákvörðun, don’t ask me. Mér bara leiddist ekkað svo, langaði engan veginn að byrja að lesa fyrir dönsku stúdentsprófið sem er á morgun. Er nú samt búin að lesa 2 texta af mörgum. En já ég ákvað semsagt í tilefni þess að mér drulluleiddist að blogga bara, sem er kraftaverk fer ekki ofan af því.

Það er hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast, meina það hlýtur eiginlega að vera þar sem síðasta færsla var í byrjun september. Djöfull er ég leim..hehe..

Ég er samt ekkert viss um að ég nenni að rekja alla söguna, finnst það mjög hæpið einhvern veginn:P en það voru náttla jól og jólapróf og skóli og allt þetta rugl fyrir áramót. Eftir áramót var svo árshátíð í skólanum, páskar, bústaðarferðir og djamm...búin að taka soldið vel á þessu djammi enda elska ég að dansa:D En það er líka bara betra. En síðust vikur er búnar að vera geðveikar, of mikið að gera í þessum blessaða skóla og svo er maður að berjast við að ná námsmatinu til þess að geta sleppt prófunum, eða öllum nema 2 og ég hafði það náttla af var með 8.7 í meðaleinkun sem er nú ekki slæmt verð ég að segja, er bara nokkuð ánægð með sjálfa mig:P svo er fullt af fólki búið að eiga afmæli núna Guðný, Dagný, Arnar, Sæþór og svo á ég náttla afmæli á morgun. Ég hlakka nú ekkert lítið til get loksins farið í ökumat og fengið fullnaðarskírteini, sem verðu ooof nice. Já ég keypti mér líka bíl í apríl. Ford Focus 99, er mjög sátt með hann. Kostaði pínu pening, en það reddast allt saman:P svo er ég víst að fara að pilla mér austur næsta laugardag, því ég byrja að vinna 7. maí. Verð rík og svona, get loksins staðið undir nafni...hehe..en já ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra að sinni, ég skelli inn mynd af bílnum mínum þegar ég verð búin að taka hana:haha:

 

bæbæ



 


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 18:48:51 / mercury

Pælingar og afmæli

Góðan daginn

 

 



Ég fór að hugsa um það í gær hver er tilgangur lífsins??

Er það að vera ríkur, vinsæll og eiga allt til alls. Eða er það að vera hamingjusamur með hvað þú átt þótt það sé ekki mikið? Þetta er massa pælingar. Ætli það sé til í orðabók eða einhverju útskýring á tilgangi lífsins eða the meaning of life? Ég vær alveg til í að sjá það eða svona meira komast yfir bókina sem inniheldur skýringuna á þessum frasa. Ég meina allt okkar líf erum við að læra, vinna og skemmta okkur eftir bestu getu. Sumir verða gráðugir og vilja stöðugt meiri peninga og fara því að svíkja og pretta náungan en aðrir eru bara þessar mellow manneskjur sem eru sáttar með sitt. Svo er líka þessi lífsstandart sem allir eru að reyna að uppfylla. Eiga 2 nýja bíla 2 hæða einbýlis hús, vera rík og virt í samfélaginu og já ganga í nýjustu tísku. Ég meina what’s up with that. Kannski ætti ég nú ekki að vera að segja mikið..ég er óttaleg merkja frík og foreldrar mínir eiga einbýlishús úti á landi og íbúð í bænum. Og þar að auki 2 nýja/ nýlega bíla. Land cruiser 2006 og skoda octaviu 2007...þannig ég ætti kannski ekki beint að vera koma með svona komment. En hvað um það þá fannst mér sniðugt að koma með einhverjar svakalegar pælingar svona einu sinni þar sem það hefur verið ekkað lítið um þær í bloggunum mínum;) hehe...en ég er nú búin að gera ýmislegt síðan ég bloggaði síðast, í gær fór ég t.d út að borða með Maju sys og vinum hennar á Indina Mango, Maja varð 21. 1.sept. En maturinn á Indian Mango var geðveikur...uuu en þjónusta, það ætti svona meir að spurja hvaða þjónusta...þetta var hryllingur. Það var sko búið að vara okkur við lélegri þjónustu en aldrei óraði mér fyrir því að hún væri svona slæm!!! GVÖÖÐ.. þetta var sko ekki eðlilegt.

En á miðvikudaginn átti Helga vinkona afmæli varð 18. sjálfráða og allt kejllingin...ég gat því miður ekki djonað henni á miðvikudeginum þar sem ég var að fara í stepp með Sessu vinkonu...það var asskoti magnað...það er ótrúlegt hvað hægt er að gera bara með höndum og fótum...ég vissi ekki að þetta væri hægt!! En á fimmtudagin var ég driver fyrir maju sys og stelpurnar í 4....o dot það var stuð, keyrði þær niðrí bæ um hálf 8 fór þaðan upp í smárlind í 8 bíó með Helgu og Guðnýju fórum á The sentinel hún er asskoti mögnuð skal ég segja ykkur... svo rauk ég úr bíóinu upp í grafarvog í smá svona get to gether með bekkjarsystrum mínum og þær ákváðu að fara á Cafe paris þannig að ég fór aftur niðri bæ...sátum þar til 12 og þá fór ég á rúntin í tæpan klukkutíma. Tókst að enda einhversstaðar lengst út í vestur bæ, þar sem ég rata akkurat ekki neitt í Reykjavík..hehe komst nú samt aftur fyrir rest niðri í miðbæ og náði í stelpurnar. Ég sofnaði sko ekki fyrr en klukkan var að nálgast 2 og var vöknuð hálf 7 er þetta eðlilegt?? Ég held ekki...enda var ég líka hálf slöpp á föstudaginn var með hausverk og kvef og ofan í það að drepast úr þreytu. Ekki nógu gott, var sofnuð fyrir hálf 11 um kvöldið og svaf í næstum 12 tíma samfleytt...hehe það var ágætt sko..

En já svo vaknaði ég í morgun og svona eða þúst meira svona um 12 leitið þar sem ég sofnaði ekki fyrr en 4 í nótt...svo var bara farið að taka til...vaska upp og svona uppáhalds jobbið mittt!! Or not! En já svo skelltum við okkur á KFC ég, maja og auður. Fengum okkur kjúklinga hamborgara og fórum svo beint í ljós...feels nice;) hehe svo sit ég núna upp í rúmmi að blogga var að klára að horfa á Star wars episode 6...asskoti skemmtilegt sko...

Já pabbi kom áðan að ná í nýja bílin ( skodann) það er sko einn nettur bíll maður shjeise, skelltum okkur í bónus og svona pabbi splæsti:D. En já svo fer amma Þóra með honum austur hún verður 75. 8. sept og mamma og pabbi ákvaðu bara að hún myndi vera hjá þeim, svo ætlar Sigurborg systir mömmu að fara austur næstu helgi þannig maður er með far og svona ef manni dytti nú í hug að skella sér...austur...er stemmari fyrir því?? Það er spurning sko...ætla að sofa á þessu fram í næstu viku og sjá svo til...

 

 



En ég kveð að sinni... vona að þetta hafi ekki verið of langt..

 Ríkey:D


» 13 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 20:19:40 / mercury

AFMÆLI!!!

Hún á AFMÆLI í dag

Hún á AFMÆLI í dag

Hún á afmæli hún

MAJA:D:D:D

Hún á AFMÆLI í dag:!::!::!:

 

 



Innilega til hamingju með  21.árs afmælið stóra sys...vona að þú hafir notið þess;)

 

 



Ríkey

 

 



p.s ég blogga seinna er bara svo þreytt að það er ekki séns að ég nenni því, hugsanlega á sunnud...


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 21:20:53 / mercury

Nýr sími

Góðan daginn

 

 



Haldiði ekki að maður sé nú bara komin í menninguna, vá hvað það er nú þægilegt...ekki það að það hafi ekki verið fínt að vera á Höfn. Það er bara svo miklu miklu meira um að vera hérna og svo fær maður að hitta vini sína og svona.

En ég fór upp á jökul á þriðjudagin með vinnunni, fórum í klukkutíma á snjósleða og það var sko massa stuð marr:D geggt gaman. Á miðvikudeginum fórum við síðan á hestbak...það var klikkað gott veður og svona þannig að allt var í guddíí.

Ég vann síðan fimmtudag og föstudag og síðan á föstudagskvöldið fór ég út að borða með mömmu, pabba og krökkunum. Fékk geggt góðan mat á kaffihorninu..nammi namm ég mæli sko með nautalundinni þar hún er gjegguð:!::!:

Svo á laugardaginn þurfti ég að keppa við Magna klukkan 4 við töpuðum því miður 3-0, sem var ekki svo slæmt. Um kvöldið fórum ég og sæþór síðan út að borða í Árnanesi, ég fékk geðveikt góðan og var því vel mett þegar ég fór heim.

Seinni leikurinn við Magna hófst síðan rétt fyrir klukkan 12 á sunnudagin og getið hvað við gerðum 0-0 jafntefli. Eftir það var síðan haldið heim og borðuð kjötsúpa að hætti mömmu sem var geðveik...ummm:D svo var byrjað að raða í bílinn...það gekk vel og svo var haldið í menninguna;)hehe

Í gær fór ég svo að kaupa bækur og svona og skoðaði bílasölur í leit að þessum eina rétt, því miður er hann ófundin, en hann kemur í leitirnar bráðlega sjáiði bara til... svo skellti ég mér í bíó með Siggu og Sessu við fórum á Pirates of the Caribbean, the deads mans chest..hún var nú asskoti nett sko en mér fannst fyrri myndin betri. En hvað um það þá fór ég í vinnuna í dag, var bara ekkað að mála kassa á vegg...sem merkilegt nokk var bara asskoti skemmtilegt. Hehe já og svo þegar ég var búin að vinna fór ég í smáralind og keypt mér nýja síma...hann er sko frekar nettur sko..eða það finnst mér...þetta er Nokia 6101

 

 

Hénna er gripurinn

 

leiters Ríkey

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 18:55:24 / mercury

keppnisferðir

Hæhæ, ég ákvað að blogga aðeins eftir helgina...

 

 



Mamma og pabbi fóru í hestaferð á fimmtudagin og komu heim í gær þannig að ég var að passa krakkana á meðan...var nú reyndar ekki mikið heima þurfti að keppa á fimmtudaginn og sunnudaginn og svo þurfti ég að vinna bæði á föst og laugardag...þannig góð pössunarpía

Svo fór ég í klippingu litun og strípur á fimmtudaginn og fór með bílin í viðgerð þar sem það var gat á pústinu og það var eins og ég væri á skriðdreka en ekki nissan micru því það heyrðist svo hátt í bílnum. Hann var tilbúin um hádegi og svona ég bara í góðum gír...nema kvað svo þegar ég kom heim úr klippingunni þá kom í ljós að það lak heitavatnsrör inn í fataherbergi hjá mömmu og pabba og hafði gert í þó nokkurn tíma. Bragi pípari kom og reddaði málunum og ég var nú ekkert lítið fegin.. svo fór ég til eskifjarðar að keppa við beyglurnar þar...þær unnu 2-1 og svo í gær þá fór ég til Húsavíkur og við töpuðum 3-0..hversu great, en við vorum reyndar bara akkurat með í lið..vorum barar 11. Ég hefði ekki komist með ef hún sveinbjörg hefði ekki ákveðið að vinna fyrir mig...hún er sko life saver!!!

 

 



En svo á laugardagin þá fórum ég sæþór , jara og sunneva vinkona jöru á flugeldasýninguna á  Jökulsárlóni...hún byrjaði klukkan 12 á miðnætti þannig að maður var ekki komin heim fyrr en seint og um síðir og svo þurfti ég að vakna klukkan hálf 7 morgunin eftir...var nú búin að sofa mikið!!! Eða bara ekki!

 

 



En hvað um það þá kom ég heim um hálf 11 í gærkvöldi...fór síðan að vinna í dag 9-5.

En á morgun ætlum við í Árnanesi að fara í útreið...allt staffið það verður nú stuð;)

Hlakka til að komast á hestbak

 

 



En ég þarf að gera mig ready fyrir æfingu, við eigum víst að hlaupa ekkað og svona..bara auðveld æfing..

Sija leiter aligater

( alveg rétt skrifað hjá mér:D)

 

 



Ríkey


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 19:13:38 / mercury

Vel heppnuð helgi;)

Jæja ég lofaði víst bloggi eftir versló og hénna kemur það

 

 



Bara svo það sé á hreinu þá er ekki svona grammar tjékk í tölvunni minni og ég nenni ekki alltaf að lesa yfir það sem ég skrifa þannig að það kemur nú bara ekkert á óvart þótt það séu innlsáttar/stafsetningarvillur í blogginu hjá mér

 

 



En alla vega þá fór ég á klaustur um helgina og það var bara asskoti skemmtilegt að fara í útilegu með mömmu og pabba. Við fórum reyndar ekki fyrr en á laugardagsmorgni því mamma og pabbi áttu 22. ára brúðkaupsafmæli á föstudeginum og við ákváðum að vera heima og borða góðan mat því það var rigning hvort eð er á Klaustri. Svo var bara lagt í hann á laugardeginum rétt fyrir 11.  Ég þurfti nú samt að stoppa við á Olís og kaupa mér gúmmítúttur þær eru geggt sætar svona bleikar með blómum á og svo keypti ég mér líka regngalla á föstudaginn, þannig að ég var vel gölluð fyrir helgina ekki það að ég hafi haft mikil not fyrir þetta nema þá einna helst á laugardeginum. En þegar við voum komin á klaustur fórum við beint á tjaldsvæðið og fundum okkur pláss til að tjalda á svo nokkrum tímum seinna komu systir mömmu, maðurinn hennar og Lilja dóttir þeirra.

Það var bara grillaðum um kvöldi og haft það fínt og svo ákvað ég að skella mér á ball í Kirkjuhvoli með hljómsveitinni The lost toad sem er local band en þettta var bara heavy stuð sko..var ekkað bara að djamma með krökkunum úr Freysnesi, þau voru í góðum gír að vanda.

En ég var stoppuð af löggunni á leiðinni á ballið, sem er bara fyndið finnst mér

Við vorum sko nátla á tjaldsvæðinu og ég nennti ekki að labba á ballið þannig að ég fékk lánaðan bílinn hjá mömmu og pabba. Svo var ég ný komin út af tjaldsvæðinu þegar löggan stoppar mig..og ég var bara ekkað WHAT!!! Hvað gerði ég???? En svo var þetta allt lagi þeir voru bara að gá hvort ég væri ekki örugglega með aldur til að keyra og hvort ég væri ekki edrú sem ég náttla var;D

 

 



En alla vega á sunnudeginum þá var ég vöknuð kl 10 skellti mér í sturtu og svona og svo var ákveðið að fara í bíltúr eftir hádegið. Við fórum upp í Hólaskjól og fórum síðan upp í Eldgjá..löbbuðum einhverja 4 km í henni og skoðuðum Ófærufoss.

Ég nennti ekki á ballið um kvöldið og var því bara heima.

En svo á mánudeginum löbbuðum við upp á fjallið fyrir ofan klaustur og það var sko heavy stuð það var geggt gott veður enda er ég með sönnun fyrir því. Ég brann nebbla ágætlega mikið sko...er með bikinítoppsfar og svona...

En ég nenni ég hef ekkert meira að segja um þessa ferð nema það á sunnudeginum keyrðum við á móti Maju því hún var að koma með Sæþór, hann var að koma af Norway cup. Ég fékk flottan bol frá honum og svona. Það var fínt að fá hann heim.

En helgin var bara mjög vel heppnuð í alla staði...gaman að fara í útilegu og svona.

En ég þarf að gera mig readdy fyrir fótboltaæfingu

 

 



Ríkey


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 22:41:34 / mercury

Verslyunamannahelgin nálgast

Hæhæ...ég ætla að skella inn stuttu bloggi fyrir verslunarmannahelgina ég blogga síðan meira eftir helgina það verður annaðhvort á mánudag eða þriðjudag.

En hvað um það þá er ég bara búin að vera að vinna síðan ég bloggaði síðast..búin að hafa það ágætt.

Reyndar búin að fara á fótboltaæfingu líka sem er bara gott mál....svo fór ég líka á hestbak með honum pabba. Það var sko geðveikt gaman..ekkert smá gott að komast aftur á bak

 

 



En hvað um það þá er ég að fara í útilegu á morgun...það verður nú stuð maður!!!! Jíbbíí

 

 



En ég blogga meira eftir helgi kem með krassandi ferðasögu (  eða ekki sjáum til) hehe

En þangað til næst

 

 



Góða verslunarmannahelgin

 

 



Ríkey


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 18:41:46 / mercury

BLOOOOGGG!!!!!!

Well Well the blogger is on the move...

 

 



Hihi...ég veit að ég er ekki beint besti bloggari í  heimi...en þar sem ég vil halda lífi ákvað ég nú að láta undan þessari mögnuðu leti minni og blogga. Annars á ég í hættu á að verða drepin í gegnum internetið sem er ekkert alltof ákjósanlegur dauðadagi skal ég nú segja ykkur.

En það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast sem er kannski ekkert skrítið þar sem ég bloggaði síðast fyrir 26 dögum..hehe...en já ég er búin að keppa fullt af fótboltaleikjum þeir fóru nú mis vel en við unnum alla vega 1 og svo erum við alltaf að tapa með eins marks mun sem sukkar nú ekkert lítið finnst mér. Svo er ég líka búin að skreppa til Akureyrar sem var bara ágætt var að keppa á Húsavík og í Grenivík. Fótboltaliðið Magni er víst þaðan, en í Magna eru kempur frá Akureyri sem komast ekki í lið eða eru ósáttar við þjálfara og svo að sjálfstögðu er Jóna Benný líka í Magna...en hvað um það þá hafði ég aldrei heyrt um Grenivík áður en ég fór að keppa þar...sýnir nú bara hvað ég er einstaklega vel að mér í landafræði Íslands eða bara ekki!!! Fyrir utan það hafa farið til Akureyrar þá hef ég nú ekki gert margt... nema vinna, spila fótbolta, lesa, borða og sofa..

Mamma og pabbi komu heim 11. júlí..ég nú ekki sagt annað en það að það var gott að fá þau heim...þá hættir maður að borða of mikið kex og svona..hehe

Ég fékk 3 boli tyggjó og buxur frá þeim þegar þau komu....bara mjög fínt...

Ég er búin að vera að vinna eins og Maniac í þessari viku...á bæði fimmtudag og föstudag vann ég 14 tíma..sem sagt frá 9 um morgun til 11 um kvöld...ég var nátla ekkert lítið þreytt þegar ég var búin að þessu..Helga og Ási skelltu sér í sólarhringsfrí og þá þurfti ég að vera í kvöldmatnum ásamt Döddu ( dóttir ása) og Ella ( syni Helgu)..þetta var nú allt gott og blessað bara meiri peningur fyrir mig..:D Peningar koma sér nefnilega alltaf vel.

En já ég var næstum búin að gleyma því að Sigga kom á kíkti á mig 10. júlí  það var heavy nice...geggt fínt að sjá hana...núna hlakka ég geggt til að komast í bæin að hitta vinkonur mínar og svona...

En ég ætla að fara skila spólunum sem við tókum í gær..tókum V for Vendetta...það er mjög fín mynd mæli með henni...

En þangað til næst...

 

 



Ríkey


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 00:11:52 / mercury

Humarhátíð

Jæja ég ætla nú að blogga aðeins fyrst að humarhátíðin er búin....

 

 



En já þá var humarhátíðin bara helvíti fín..

Á föstudaginn komu Maja, Auður og Sessa...reyndar ekki fyrr en um 12 leitið sko sem var bara í góðu sko...ég var að spila fótboltaleik á föstudaginn við unnun 2-0 þannig að það var nú bara besta byrjun á humarhátíð sem ég hef nokkurntíma haft því ég meina er ekki bara toppurinn að vinna...;D....en alla vega eins og ég var að segja þá komu Maja, Auður og Sessa um 12 leitið...ég var bara ekkað að slæpast með Helgu og Guðnýju...svo fórum við heim og svona...ég keyrði Maja og Auði á ball á víkinni og rúntaði síðan smá með Helgu, Sessu og Guðnýju svo skelltum við okkur á ball  í Sindrabæ..það var massa stuð reyndar fórum við Sessa heim sökum þreytu um 3 leitið spjölluðum reyndar til 4 og fórum svo að sofa....svo var ég vakin um 11 leitið af henni Valdísi til að segja mér að ég væri að fara að vinni við leiktækin við Ásgarð klukkan 1-4 ég bölvaði því náttla og hélt að eins áfram að sofa...svo drattaðist ég á fætur og fór að vinna...þegar ég var búin að því fórum við Maja, Auður , sessa og ég heim að elda og ekkað solleis...skelltum okkur síðan niður á bryggju um hálf 10 hlustuðum á skemmtiatriði og svona og reyndum að kaupa miða fyrir mig og Sessu á ballið en asnin hann Steindór vildi ekki selja mér miða:@ en svo var bara farið heim að gera sig reddý fyrir ballið því ég ætlaði mér sko pottþétt að fara á það...svo ekkað um 1 leitið keyrði ég Maju og Auði á ballið og ég Helga og Guðnýju rúntuðum ekkað smá...Sessa nennti nebbla ekki á ball hún var of þreytt þannig að hún varð bara eftir heim og hafði það nice þar...en já alla vega svo keypti Ingibjörg fyrir mig miða og ég labbaði bara inn ekkert mál...og takk æðislega fyrir að gera þetta fyrir mig Ibba...I reallu apresiati it ...eða ekkað solleis....en svo var bara dansað af sér rassgatið til klukkan 4 og síðan farið heim að sofa...ég var síðan vöknuð aftur korter yfir 8 til þess að henda mér í sturtu og fara síðan í vinnuna...ég var komin með líka þessa massa hálsbólgu það heyrðist akkurat ekki neitt mér sem var bara sko great eða ekki, var alveg að drepast og er ennþá dáldið mikið hás...samt er þetta nú allt að lagast...

 

 



En stelpurnar fóru síðan heim um 2 leitið í gær og ég vann til hálf 5...svo hringdi ég í Helgu og Guðnýju og við keyptum okkur hamborgara og franskar og tókum spólu og keyptum okkur nammi svona...svo var bara horft á Cheaper by the dozen 2 sem er bara heavy skemmtileg...

 

 



Svo vaknaði ég bara klukkan 8 í morgun fór í vinnuna og vann til hálf 5...svo kom ég heim og fór á trammpið heima hjá Þórdísi með Helgu og Guðnýju...svo skellti ég mér í ljós...er reyndar heavy brunnin núna sem ég er ekki alltof sátt við...svo keyptum við okkur ís og tókum spólu og svona, við tókum The family Stone sem var bara merkilega skemmtileg....svo erum núna að glápa á friends eða ég og Helga erum að horfa á það því Guðný er sofnuð í sófanum...

 

 



En ég blogga seinna

 

 



Ríkey


» 32 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 16:35:29 / mercury

fótbolti og meiri fótbolti:D

Aló....hvað segist gott fólk

 

 



En alla vega þá ætla ég ekkað að blogga smá...dáldið síðan ég bloggaði síðast nebbla...en já í síðasta bloggi sagði ég frá því að ég hefði keypt mér nýja takkaskó....það er alveg rétt sko og ég er búin að fá þá og allt en nafnið var kannski ekki alveg  rétt því þeir heita sko Copa mundial en ekki Coda Mundi eins og ég hélt8|hehe

 

 



En já við kepptum á fimmtudaginn töpuðum 3-1 á móti fjarðarbyggð...mig langaði sko mest til þess að lemja dómarann því hann er fæðingar hálfviti eða það hefur ekkað mikið gerst fyrir hann því þúst bbaaaahhh ég var orðin svo pirruð..en við töpuðum ekki leiknum bara út af dómaranum, heldur líka út af því að við kláruðum aldrei færin okkar eða alla vega mjög sjaldan sem er hreinlega ekki nógu gott þegar maður þarf að skora mörk til að vinna leikinn...en alla þrátt fyrir að við höfðum tapað var samt gaman á leiðinni heim aftur eða alla vega hjá mér og Valdísi... við vorum á hlusta á eurovisionlög á fullu og syngjandi með eins og vitleysingar..stelpurnar horfðu á okkur eins og við værum vangefnar eða þær sem voru vakandi þar að segja. En mér fannst þetta stuð ég meina afhverju ætti maður ekk að syngja með... það skapar bara stemmingu svona oftast nema þegar maður er eilla bara innan um sofandi fólk...

 

 



En hvað um það þá tókst mér nátla að næla mér í 1 stykki kvef..ég er sko ekki nógu sátt, er herrandi daginn út  og inn og hóstandi líka þannig þetta er ekki nógu gott. Nennti þessu nú ekki lengur of fór og keypti mér strepsils og otrivin í Lyfju í gær. Svo er mér líka svo illt í bakinu veit nú ekki alveg hvað það á að þýða kannski er það ofreynsla eða bara ekkað annað en ég er alla vega ekki sátt við það sko...

 

 



En ég nenni ekki að hafa þetta lengra ælta að fara að lesa og síðan að horfa á fótbolta fyrst hjá 3. flokki kvenna sem er að fara að keppa við val, þrótt og leikni  og svo á heimsmeistarakeppnina en það er sko leikur englendinga og svíþjóð...hlakka geggt til

 

 



En gangi ykkur vel stelpur...

 

 



Adios

 

 



Ríkey


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3